RocketTheme Joomla Templates

MEIRI UPPL.
svaka.net
Bilun

20100727
Alvarleg bilun varð í póstkerfi hjá DCC ehf í dag.

Búið er að greina bilun og verið er að vinna í að skipta út búnaði sem útilokar frekari truflanir. 
Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem hafa orðið og munum gera allt sem hægt er til að útiloka frekari truflanir af þessum völdum.

 

 
svAka.NET Þjónusta

LÆKKAÐU KOSTNAÐINN HJÁ ÞÉR Í TÖLVUREKSTRI UM 30-60%.

 Sendu okkur tölvupóst og kannaðu málið.
smelltu hér.
  Eða hringdu í síma 5127600

 

Svaka Net Þjónusta er alhliða tölvu og netþjónusta sem hefur starfað óslitið frá árinu 1991.

Upphaflega var þjónustan stofnuð kringum tölvuinnflutning og rekin sem einyrkjaþjónusta til ársins 2000 þegar kerfi og aðstaða var seld til ASP Tölvuþjónustu.  Netþjónustan óx og dafnaði hjá ASP Tölvuþjónustu en árið 2006 fór ASP að sinna öðrum verkefnum og seldi netþjónustuhlutan úr rekstri sínum til fyrrum stofnanda Gests Andrésar Grjetarssonar sem innti þjónustunni næstu tvö árin, eða þar til DCC ehf var stofnað.

Frá árinu 2007 hefur  SVAKA.NET Þjónusta verið rekin sem sjálfstæð rekstrareining innan samstæðu DCC ehf ráðgjafar og þjónustuaðila í upplýsingatæknimarkaðinum.  DCC ehf sérhæfir sig í net og tölvuráðgjöf, rekstri tölvukerfa, nethýsingu, netviðgerðum, hönnun og viðhaldi.  Einnig kemur DCC ehf mikið að öryggismálum hjá fyrirtækjum og stofnunum, þar sem eldveggir og öryggiskerfi er viðhaldið og rekin fyrir viðskiptavini.

DCC ehf hefur einskorðað sig við að viðhalda lítillri yfirbyggingu, safnar aldrei skuldum og vinnur þannig á í harðri samkeppni og stuðlar að öruggum og fumlausum vinnubrögðum þar sem fagmennska og rekstraröryggi er í fyrirrúmi.

Vegna jákvæðrar fjárstöðu, lágmarks kostnaðar og öflugum viðurkenndum lausnum, þar sem við vinnum á okkar eigin verðleikum, þá getum við boðið góð verð og tryggt viðskiptavinum okkar traust umhverfi til að reka þeirra kerfi.  Öll okkar þjónusta byggir á lausnum sem við rekum í okkar eigin húsnæði með búnaði sem við eigum en leigjum ekki eða samnýtum með öðrum.  Grundvöllur okkar byggir á hugmyndafræði um að við erum og verðum sá hornsteinn sem viðskiptavinir þurfa til að geta byggt sitt rekstrarumhverfi á traustum grunni.

Leitaðu óhikað til okkar.  Við gefum þér ráð og dáð.  Miðlun tæknimála þér í hag er metnaður okkar, byggt á áralangri reynslu og þekkingu sem við státum af.  Þú getur treyst okkur fyrir þinum málum.

 

Eigandi og stofnandi svAka.NET Þjónustu er Gestur Andrés Grjetarsson.