RocketTheme Joomla Templates

MEIRI UPPL.
Öryggisúttekt Prenta Rafpóstur

DCC byggir allt netkerfi sitt á hinum háþróaða og þrautgóða Cisco netbúnaði. Öryggisgáttir okkar eru tryggðar með tvöfölldum eldvegg af Cisco gerð sem tryggir hámarks uppitíma og hámarks gæði með failover redundant búnaði.  Við byggjum okkar öryggi á viðurkenndum öryggisstöðlum í samskiptum við netið fyrir þjónustur sem við bjóðum okkar viðskiptavinum. Svokallað redundancy er notað í tengingu okkar við netið, sem þýðir að við tengjumst með tvöfalldri tengingu inná Internetið þannig að ef vélbúnaður eða lína bilar, þá höfum við varalínu og tengingu til að tryggja að samband sé virkt öllum stundum. 

Endurnýjun:
Stöðugt viðhald og eftirlit með búnaði og tækjum okkar, tryggir sem kostur er að gögn, samskipti og rekstur þjónustukerfa viðskiptavina okkar er hámarkaður og þannig gæðin aukin til muna.

Ráðgjöf í öryggismálum:
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að innleiða eldveggjarþjónustur í kerfi sín, sjáum um að endurhanna og skipuleggja öryggismál þar sem þarf og veitum ráðgjöf þar sem við á.

Þekking í öryggislausnum:
Viðskiptavinum er velkomið að senda erindi til DCC varðandi öryggismál, við svörum fyrirspurnum af kostgæfni og drengskap byggt á áralangri reynslu sérfræðinga okkar í rekstri, hönnun og uppbyggingu tölvukerfa af öllum toga.