RocketTheme Joomla Templates

MEIRI UPPL.
Kerfisrekstur Prenta Rafpóstur

Búnaðurinn:
IBM hátæknibúnaður DCC ehf sem er í fremstu röð meðal jafningja hvað varðar gæði, stöðugleika, hönnun og innri öryggi sem tryggir þér sem næst fullkomið rekstraröryggi.

Valmöguleikar:
Þú getur valið um Windows eða Unix stýrikerfi til að reka þjónustur þínar við Internetið.  Við hjá DCC höfum áralanga reynslu í uppbyggingu þjónusta sem halda utanum rekstrarumhverfi fyrirtækja, einstaklinga og stofnana á netinu.

Aðgengilegt:
Viðskiptavinir DCC fá aðgang að sínum hugbúnaði eða þjónustu yfir netið á tengingum sem við á, hvort sem um leigulínur, adsl, upphringisambönd er að ræða.

Þjónustan:
Þjónustan sem við veitum er af margvíslegum toga.  Við sérhæfum okkur í því að byggja upp sérsmíðaðar lausnir fyrir þá sem vilja, eða bjóðum staðlaðar lausnir fyrir hefðbundin þjónustukerfi, allt eftir óskum viðskiptavina okkar.  VPN, læstar tengingar (SSL), hýsingar, öryggisgáttir (firewall/pix), víðnet, millinet osfrv. er meðal þess sem við rekum daglega í kerfum okkar.

Rekstrarmhverfið:
Okkar rekstarumhverfi nýtur fullkomins kælikerfis, rafstöð, ups (batterí) og brunavarnir, sem eykur rekstraröryggi fyrir öllum helstu áföllum sem verða í tölvukerfum fyrirtækja, einstaklinga eða stofnana.  Kerfisrými okkar eru vöktuð allan sólarhringinn.