RocketTheme Joomla Templates

MEIRI UPPL.

Samstarfsaðilar

Við notum IBM netþjóna til að tryggja sem öruggastan rekstur á þjónustuliðum kerfa okkar viðskiptavina.

 IBM

Cisco búnaður er nýttur í allan okkar netrekstur, sem tryggir einlitt og stílhreint netþjónustukerfi.
Cisco

Þjónusta Prenta Rafpóstur

Það er stefna DCC að átta sig á þörfum og væntingum viðskiptavina, uppfylla þær og þjóna þeim sem best á hverjum tíma. Góð þjónusta er að gera viðskiptavini ánægða.

Þess vegna leitast starfsfólk DCC ávallt við að þróa og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini sína, báðum aðilum til hagsbóta.

Það fólk, sem ekki finnur upplýsingar um hluti sem leita er að í efnisflokkum hér á vefsvæðinu, biðjum við um að hafa samband við okkur og athuga hvort við greiðum fljótt og örugglega úr þeirra málum.

Hafðu samband

 

Viðskiptavinir okkar sem þess óska, fá aðgang að sínum þjónustum til að viðhalda á allan hátt mögulegan.  Notendavænt viðmót á íslensku hjálpar kerfisstjórum að halda utanum sínar þjónustur, stofna nýjar, eyða út því sem er ekki lengur notað og breyta því sem breyta þarf.  Viðmótið gerir öllum okkar notendum kleift að vera sjálfbjarga með að sækja sér lausnir þegar þörf er á.

Lén admin (DNS) tól gerir viðskiptavinum okkar kleift að stofna og reka sín lén, breyta þeim, afskrá og bæta við.  Öll umsjón fer fram um vefinn á einfaldan og öruggan máta yfir dulkóðaðar veftengingar.

Póst admin (Mail) tól auðveldar alla umsýslu fyrir viðskiptavini okkar að viðhalda pósthólfum, lykilorðum, stofnun nýrra hólfa, nýrra aliasa (framsendingarpósti) og póstlistum.  Ákaflega einfalt í meðhöndlun og einstaklega hraðvirkt kerfi tryggir rekstur og einfaldar allan rekstur póstkerfa.

Fleiri admin tól eru í boði hjá okkur, hafðu samband við okkur og fáðu tilboð í rekstur á léni þínu, vef og utanumhald um þínar upplýsingar í sérhæfðu kerfi sem heldur utanum upplýsingatæknina þína hverju sinni.

Vertu velkomin í þjónustu hjá DCC ehf, Svaka.Net þjónustu.